Um okkur
i.Hreyfingin
Friðar Febrúar er ekki einn viðburður. Það er mánuður þar sem fólk um allt land sest niður, hvert á sínum stað, með sama ásetning.
Hugleiðslumiðstöðvar, jógastöðvar, andleg félög, trúfélög, hugleiðsluhópar og einstaklingar bjóða upp á stundir allan mánuðinn, hver með sinni aðferð.
Þú þarft enga reynslu og engin sérstök trúarbrögð. Bara að vilja vera með. Markmiðið er að gera hugleiðslu aðgengilega öllum.


Við þurfum ekki að vera á sama stað eða hugleiða á nákvæmlega sama tíma. Við þurfum aðeins að sameinast í ásetningi okkar um frið, kærleika og betri framtíð.
ii.Sýnin
Að Ísland geti orðið hamingjusamasta land í heimi.
Við búum í landi fjalla, jökla, eldfjalla og hreins vatns, og því fylgir ábyrgð. Við viljum verða þjóð sem lifir í sátt við sjálfa sig, hvert annað og náttúruna sem við höfum fengið að varðveita.
- Hamingjusamt samfélag
- Vellíðan, öryggi, tilgangur og tilheyrandi.
- Friður og kærleikur
- Virðing, samkennd, skilningur og umhyggja.
- Verndun náttúrunnar
- Hreint vatn og loft, heilbrigð vistkerfi.
- Ábyrgð og fyrirmynd
- Þjóð sem lifir í sátt við náttúruna.
- Sterkara samfélag
- Fólk styður hvert annað.
- Friður í heiminum
- Að sýnin nái til heimsins alls.


Upphaf að einhverju stærra
Við viljum að hugleiðsla verði eðlilegur hluti af daglegu lífi og að ólíkar hefðir vinni saman. Til lengri tíma viljum við rannsaka tengsl hugleiðslu og vellíðanar með fræðasamfélaginu.

Vertu með frá byrjun.
Skráðu þig og við sendum þér dagskrána þegar hún er tilbúin, ásamt hugleiðslum og textum þegar nær dregur febrúar.