Friðar Febrúar
ÍSEN
Hópur fólks hugleiðir saman í hring

Bjóddu upp á hugleiðslu í febrúar

Fyrir stúdíó, hópa, félög og leiðbeinendur. Þú ræður tíma, stað og aðferð. Það kostar ekkert.

i.Svona virkar þetta

  1. 1

    Skráðu stundina

    Fimm reitir í forminu hér að neðan. Tekur tvær mínútur.

  2. 2

    Við staðfestum

    Við höfum samband ef eitthvað vantar.

  3. 3

    Hún fer á vefinn

    Fólk um allt land finnur stundina þína.

ii.Skráning

Skráðu hugleiðslustund

Aðeins fimm reitir eru nauðsynlegir. Viltu frekar tala við okkur? Hringdu í Styrmir í síma 783 1993 eða sendu okkur skilaboð.

Þitt nafn eða nafn stöðvarinnar / hópsins.

Fleiri upplýsingar (valfrjálst)
Fyrirkomulag

Við förum yfir skráninguna og höfum samband áður en hún fer á vefinn.

iii.Algengar spurningar

Kostar eitthvað að vera með?

Nei. Það kostar ekkert að skrá stund. Þú ræður sjálf/ur hvort þátttaka í þinni stund er ókeypis eða gegn gjaldi.

Þurfum við að fylgja ákveðinni aðferð?

Nei. Hver heldur sinni hefð, aðferð og sérstöðu. Það sem sameinar okkur er ásetningurinn um frið og kærleika.

Verða stundirnar að vera á sameiginlegu tímunum?

Við hvetjum til þess, fimmtudaga kl. 20:00 og sunnudaga kl. 17:00, en það mikilvægasta er að fólk taki þátt. Aðrir tímar eru velkomnir.

Getum við skráð fleiri en eina stund?

Já. Lýstu þeim öllum í reitnum „Hvenær?“, eða sendu inn eina skráningu fyrir hverja tegund stundar.